28 júlí 2006

Klakinn, again and again

Jæja, þá er ég lent á klakanum :/ og ég fékk að knúsa manninn minn, en gleðin á okkar bæ entist ekki lengi þar sem hann flýgur til Norge eftir nánar tiltekið 2 tíma! gosh
Annars, hvað skal skrifa frá Mallorca? best að stikla á stóru ... í punktum ...
  • Ofarlega á baugi var sólarvörn, sólarsæla og bananaboat after sun
  • Léttklæddir mongólítar (þá er ég að tala um okkur geðbiluðu íslensku stúlkurnar)
  • NEI, við erum ekki Þjóðverjar!! *reiði*
  • Fyllerí ;) dansandi sveittir og sexý karlmenn í "rimlabúrum" já og náttúrulega konur, það var svona minna fyrir mig!
  • Það var alveg legið í slatta tíma á ströndinni, svamlandi um á dýnu og svo áttum við líka sólhlíf, btw við skildum þetta drasl bara eftir vegna plássleysis .. nauðsynlegri hlutir þurftu að komast í töskurnar okkar, hehe
  • Skelltum okkur alveg 2svar í mollið, Porto Pi, og versluðum tja, alveg heilan helling
  • Sólborg og Vildís með strengi í höndunum daginn eftir vegna áreynslu í að halda á pokum fullum af fötum og fatahrúgum á leiðinni í mátunarklefann
  • Pjéningarnir flugu frá okkur (samt vorum við ekki rændar)
  • Keyptar voru svolítið stórar töskur til þess að koma nauðsynlegu hlutunum heim, þar sem hinar voru orðnar pakkfullar
  • Allir í essinu sínu
  • Þjónarnir farnir að kyssa okkur bless og vera með látalæti .. (er það ekki orð?)
  • Lítið af myndum teknar, helvede
  • Margt gerðist en sumt er bara ekki hægt að segja hér, hahahah
  • Vildís útétin af ógeðisflugum (myndir væntanlegar, bjakk)
  • Misstum okkur í vatnsleikjagarðinum, Aqualand, og hleyptum barninu svo sannarlega út já og sleiktum sólina og borðuðum skrítna pizzu
  • Lifðum lúxuslífi og borðuðum úti á veitingastöðum í hádeginu og kvöldmatnum og ekki má gleyma girnilegum kokteilum,
  • Hristum á okkur rassinn á Riu Palace, aðalpleisið
  • Guðrún og súdúkú, like this (krosslagðir puttar)
  • Fórum á djammið kvöldið áður en við fórum heim
  • Beint á hótelið af skemmtistaðnum
  • Upp í rútu
  • og svo í Flugvélina, allar með comfort settið á réttum stað :)
  • klst. bið eftir því að flugvélin fór af stað, við vorum fullar og vitlausar og sváfum bara þann tíma, ég viðurkenni að ég vissi það ekki einu sinni .. hehe .. heyrði það aldrei sagt
  • Flugið leið hratt með smá ógleði og ommelettu
  • Hvítir rassar

Nú er þetta komið nóg, það er samt pottþétt frá miklu meira að segja sem ég gleymi eða get bara hreinlega ekki sett hér á internetið fyrir framan alþjóð ;) Myndir eru væntanlegar, samt ekki strax, mín vél er brátt á leið aftur út í lönd og ekki gafst tími til að setja myndirnar í tölvuna :/ Takk fyrir ferðina elsku stúlkukindunar mínar :) þetta verður pottþétt endurtekið!

Sólborg - segir bless, ekkert stress og verið hress

19 júlí 2006

Mallorca here I come ;)

Jæja er hérna í vinnunni og er orðin nett spennt fyrir ferðinni minni, hehe .. já öfundið mig endilega. Ég og Vildís brunum suður eftir vinnu í borg óttans og svo bara út á morgum :) fáum að gista hjá móður hennar Guðrúnar í Keflavíkinni .. þannig að segji bara adios og hafið það gott í kuldanum elskurnar mínar! (p.s. ég er bara orðin ofurbloggari!)



Sólborg - farin að leika mér

17 júlí 2006

Mikið lifandi skelfingar ósköp er gaman ...

... að vera svolítið hífaður (lalalala, sungið) Það var Ábæjarskrall um helgina sem tókst vel til, allur mannskapurinn nema ólétta konan og Óli drukku! og tóku sko vel á því, drykkjuleikir og skotboðhlaup voru nú til þess að allir komust ekki alla leið niður í bæ, stoppuðust í leigubílnum ælandi paprikum ;) hehe sæta sæta!

Annars er makalegt að fólk sem skipar manni að blogga er að spara kommentin, hehe .. you know who you are! ... annars er það helsta í fréttu að ég fer út eftir 3 daga, suður eftir 2! og fólk, það er sko komin inn ný massa myndasíða, með myndum frá London, Dimmiteringunni, 17. júní svo eitthvað sé nefnt. Stefni á að setja Mallorcamyndirnar þarna inn þegar ég verð lent á klakanum aftur ;) so enjoy ljúflingar!

Sólborg - bara rétt að tjá mig og alveg að rjúka af klakanum

14 júlí 2006

Hví?

já, ég spyr að því .. hví bloggar maður ef maður hefur voðalega lítið að segja?

Ég hef eitt að segja; Ég samhryggist fjölskyldu og vinum Sigrúnar, eða bara öllum sem þekktu hana lítillega, hún var alltaf svo hress. Hennar verður sárt saknað :/
... Hvíl í Friði Sigrún ...

En að öðrum málum; finnst samt asnalegt að tala um skemmtilega hluti rétt eftir að ég hef verið að tala um hörmulega hluti! ........ ég er að fara út til Mallorca eftir 6, sex, daga :) það verður gott! slappa af með kokteil á ströndinni já eða sundlaugarbakkanum í sandölum og ermalausum boooool. Verlsa svona aðeins það sem manni "vantar" og tjékka bara mannlífið, því miður verður gleðin stutt þar sem að ég verð lent aftur á klakanum einni viku síðar. Ferðafélagar mínir eru ekki af verri endanum og munu það vera hinar margrómuðu Guðrún og Vildís :) vantar reyndar Túttuna, en hún kemur kannski bara næst!
Annars erum við farnar að hugsa um hvað skuli gera eftir skólann .. við erum alltaf að skipta um skoðun, svo ég held ég tjái mig ekkert um það hér .. er orðin lítið meira en spennt sko! fjúddafjú ...
Starfsmannapartý í kveld, í partýhlíð 14, skemmtiatriðin hjá okkur Vildísi verða svaðaleg, hehe .. við erum samt held ég ekkert alveg búnar að ákveða allt ;) en þetta reddast!

Sólborg - hví?

27 júní 2006

Hvaða stafi átt þú?

Sólborg
S; People think you are so sexy
O; You love foreplay
L; You always make other people smile when you smile
B; You are always fun when it comes to meeting new people
O; You love foreplay
R; You are beutiful and sexy
G; You are friendly and understanding

A: You have trouble trusting people
B: You are always fun when it comes to meeting new people
C: youre wild and crazy
D: You are popular with all types of people
E: A Hottie
F: People totally adore you
G: You are very friendly and understanding
H: You have a very good personality and good looks
I: You Hate Liers
J: Everyone loves you
K: You like to try new things
L: You always make other people smile when you smile
M: Success comes easily to you
N: You'r great in bed
O: You love foreplay
P: You are very friendly and understanding
Q: You are a hypocrite
R: You are beautiful and sexy
S: People think you are so sexy
T: You are one of the best in bed
U: You are really chil
lV: You are not judgemental
W: You are very broad minded
X: You never let people tell you what to do
Y: you make every experience great
Z: You're Super cool
Þ: You´re fkn hot
Æ: You areoutgoing person
Ö: You´re wild in bad

Hvað ert þú?

Annars er voðalega lítið að frétta, bara vinna og vinna, ball á Hofsósi reyndar .. fullt af slúðri en það er væntanlega hægt að lesa það á öllum öðrum síðum ;)
FLAN, ég er að vinna í myndunum!!

Sólborg - nennir ekki að blogga og gerir stafaruglumsullumbull

21 júní 2006

Það sem framtíðin ber í skauti sér ...

... er eitthvað svo óútreiknanlegt! hmm, um daginn langaði mig að fara þangað og gera þetta þegar ég væri orðin "stór" en í dag hef ég skipt um skoðun. Kannski er það bara ég sem er svona óútreiknanleg? Ætli framtíðin breytist nokkuð mikið við það að ég hafi fengið mér brauðloku í hádeginu í staðinn fyrir hafragraut, kannski bara þyngdarlögmálið? ;)
Helgin var góð, mikið fyllerí, mikil þynnka .. samt aðallega hjá Guðrúnu, þá þynnkan .. helgin í hnotskurn var mjög góð, Anna frænka mín útskrifaðist úr MA og Vignir átti afmæli og vil ég óska þeim báðum til hamingju!
Mallorca er að koma í nánustu framtíð, finnst eins og það sé eilífð síðan við pöntuðum ferðina okkar og það er loksins að koma að því, bara svona mánuður :D Annars gengur lífið sinn vanagang og landsmót hestamanna er á næstu grösum, sem er ekki skemmtun fyrir mig eins og aðra, heldur áhyggjuefni .. Ábær .. og það að ég missi af Hamingjudögum á Hólmavík!! flan .. myndir á næsta leyti, er að vinna í myndasíðunni minni, þolinmæði :)
En annars er ég að springa úr gleði í lífinu mínu .. og ég hef ekki hugmynd um af hverju, kannski er það sumarið eða bara fjöllinn, hvað veit ég?

Sólborg - í gleðinni

09 júní 2006

Næstum kominn mánuður .. úff

Hæ, ég veit að sum ykkar hafið verið að bíða eftir mér! en ég get ekki þóknast öllum, kúnnarnir eru nr. 1,2 og 3. En nú hef, samviskusamlega, fundið stund aflögu til þess að sinna ykkur kæru vinir og félagar ..........
Annars er ég löngu komin heim úr London og farin að vinna í ástríka bankanum mínum, Landsbanka Íslands banka allra landsmanna! og líkar það vel þetta sumarið. Ég hef voða lítið að segja og var búin að ákveða það að þegar ég myndi blogga næst myndi ég setja myndir frá London, útskriftinni hans Alberts og kannski djamminu, þær verða þá bara að fylgja næsta bloggi! Sumarið leggst alveg einstaklega vel í mig þrátt fyrir að það sé ekkert voðalega gott tíðarfar, ástæðan fyrir þessum hressleika held ég að sé hreinlega ég, hahahah ... vona það allavega! En annars er hvað, 1 og hálfur mánuður þangað til að ég mun vera að spóka mig á ströndum Mallorca, ekki þykir mér það leiðinlegt. Verst er að ég vildi bara vera þar núna .. en þú færð ekki alltaf það sem þú vilt.
Lítið hefur hins vegar drifið á daga mína annað en vinnan og já, bara lífið og tilveran. Skellti mér reyndar á djammið á laugardaginn, byrjuðum í pottinum og svona, það lukkaðist bara með eindæmum vel. Svo segji ég að ekkert hafi gerst? undur og stórmerki hafa gerst (eða ekkki) ég fór í klippingu, ef ég væri heima léti ég mynd fylgja en svo verður ekki þar sem ég er í bankanum. Annars af þessu bloggi að dæma verður næsta blogg stútfullt af myndum.
Nú held ég að þessu sé lokið, reyndar var þetta voðalega innihaldslítið blogg flan, ohh hvað mig langar að fá mér ´mitt kort´ get bara ekki ákveðið hvaða mynd ég ætti að hafa ...

Sólborg - myndaóða ruglukollan

12 maí 2006

Good times, good times!

Það er föstudagskveld og það eru .allir. á djamminu nema ég, eða næstum allir! ég er nefnilega að fara í skítastærðfræðipróf á mánudaginn og þar af leiðandi þar sem ég sökka í stærðfræði þarf ég að læra. Alltaf jafn skemmtileg svona skólaógeðishórupussublogg ;) en baaah!
Annars eru það bara 5 dagar í London, nánast bara 4, 2 mánuðir í Mallorca. Það er samt erfitt að vera stór og þurfa að vera eitthvað að vinna læra, taka próf og þess háttar. Allt sumarið fer í að hanga inni í vinnunni, þegar ég var yngri var ég úti allt sumarið og lék mér, í hinum og þessum leikjum, hékk í sundi og í sveitinni. Oooo hvað ég elskaði það að flatmaga í drullulauginni á slöngu, uppblásinni dýnu og bara hverju sem er nánast! og hoppa svo útí á, synda í hylnum, fara í drullubað og bara nefndu það. Mig langar í það aftur, fjúff.
Ein ég sit og sauma, inní litlu húsi. Samt er ég að plata ykkur, ég er bara hérna að tölvast og tívíast með tónlistina í gangi og ég þrái göngutúr :) kannski ég skelli mér?

Sólborg - vá, hvað tíminn líður hratt

09 maí 2006

Komin tími á blogg?

Mér, persónulega, finnst ekki gaman að lesa blogg þegar það stendur ekkert merkilegt í þeim! heh, hvað þá að skrifa eitt svoleiðis. Prófin eru byrjuð, ég er búin með 2 og á 2 eftir :) gott mál! samt 2 erfiðustu prófin, hell. Jæja, ég er búin að vera að vinna einum OF mikið seinustu daga og er komin í frí fram á föstudag, JEI! annars er lífið núna bara að læra og að vinna, þvílíkt spennandi ...... London eftir 8 daga :) ójá!
Tók próf á netinu áðan um hversu ill ég væri, hér er niðurstaðan;
You Are 32% Evil
A bit of evil lurks in your heart, but you hide it well.In some ways, you are the most dangerous kind of evil.
Sólborg - góða stelpan!, hversu ill/ur ert þú?

29 apríl 2006

Dimmitering!

Bwahahahahahah, snilldarkvöld, eða tja nótt og morgun ;)
.. ég held ég láti myndirnar bara tala sínu máli.
Er ekki alltaf sagt að myndir segji meira en orð?

Njótið!















Gellurnar ready






Saltstangirnar voru í miklu uppáhaldi þetta kveld!

















Í svona miklu uppáhaldi
















Sumir voru LÉTTklæddir



Svali svipurinn Siggu Túttu! ;)



Albert agalegi!



Sumartískan 2006, fólk aðeins að missa sig. Gaman að finna föt á víðavangi, þá verðuru náttúrlega BARA að klæða þig í þau! hehe



Vildís var voðalega sár yfir því að ég skyldi taka af henni saltstangirnar + það að Stefán borðaði alla ídýfuna!!



Wtf?!!?



.. og þá var kátt í höllinni, höllinni ......




Allir orðnir vel sjúskaðir ;) hahahahha

Sólborg - fullumsullumbull!