09 júní 2006

Næstum kominn mánuður .. úff

Hæ, ég veit að sum ykkar hafið verið að bíða eftir mér! en ég get ekki þóknast öllum, kúnnarnir eru nr. 1,2 og 3. En nú hef, samviskusamlega, fundið stund aflögu til þess að sinna ykkur kæru vinir og félagar ..........
Annars er ég löngu komin heim úr London og farin að vinna í ástríka bankanum mínum, Landsbanka Íslands banka allra landsmanna! og líkar það vel þetta sumarið. Ég hef voða lítið að segja og var búin að ákveða það að þegar ég myndi blogga næst myndi ég setja myndir frá London, útskriftinni hans Alberts og kannski djamminu, þær verða þá bara að fylgja næsta bloggi! Sumarið leggst alveg einstaklega vel í mig þrátt fyrir að það sé ekkert voðalega gott tíðarfar, ástæðan fyrir þessum hressleika held ég að sé hreinlega ég, hahahah ... vona það allavega! En annars er hvað, 1 og hálfur mánuður þangað til að ég mun vera að spóka mig á ströndum Mallorca, ekki þykir mér það leiðinlegt. Verst er að ég vildi bara vera þar núna .. en þú færð ekki alltaf það sem þú vilt.
Lítið hefur hins vegar drifið á daga mína annað en vinnan og já, bara lífið og tilveran. Skellti mér reyndar á djammið á laugardaginn, byrjuðum í pottinum og svona, það lukkaðist bara með eindæmum vel. Svo segji ég að ekkert hafi gerst? undur og stórmerki hafa gerst (eða ekkki) ég fór í klippingu, ef ég væri heima léti ég mynd fylgja en svo verður ekki þar sem ég er í bankanum. Annars af þessu bloggi að dæma verður næsta blogg stútfullt af myndum.
Nú held ég að þessu sé lokið, reyndar var þetta voðalega innihaldslítið blogg flan, ohh hvað mig langar að fá mér ´mitt kort´ get bara ekki ákveðið hvaða mynd ég ætti að hafa ...

Sólborg - myndaóða ruglukollan

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

jei...og það kom blogg..ég hefði nú samt viljað fá myndir..:(

Nafnlaus sagði...

Ég gleðst yfir þessu bloggi, enda þarf ekki mikið til að gleðja mig þessa dagana. Hefði samt verið alveg rjóminn á kakóinu að fá nokkrar myndir ;)

Nafnlaus sagði...

ég skal senda þér mynd af mér til að hafa á kortinu þínu :)

gaman að sjá blogglíf í æðum, bíð spennt eftir myndum af þér

kv frænkan

Nafnlaus sagði...

ég bíð spennt eftir myndum :D mig langar til útlanda

Nafnlaus sagði...

Hmm, ég neyðist greinilega til þess að blogga heima hjá mér, út af öllum þessum myndum! en Elín, hvar er myndin sem ég átti að setja á kortið mitt?

Nafnlaus sagði...

ahh..... æi.. heyrðu, það er eitthvað vandamál með þessar digital vélar, þær ná illa að festa mig í sessi..... er að vinna í þessu... sendi kannski bara mynd af hlussustórum maga mínum í staðinn :)