06 júlí 2007

Jájájá, ég ætla alltaf að segja voðalega mikið! enn svo þegar ég sest við tölvuna nenni ég engan veginn að fara að þylja eitthvað upp hvað ég er búin að vera að gera og eitthvað ;) enda finnst mér svoleiðis blogg ekkert voðalega skemmtileg! hehe .. allavega ekki hjá fólki sem bloggar svona ansi sjaldan einsog ég! úps ..


Við í fyrra, voða litlar ;) híhí

Annars er komin föstudagur (svona næstum) og ég flýg út í góða veðrið á BeneBene á mánudaginn! mig langaði eiginlega bara að segja það. Og ég fýla líka nýja lagið með Palla, Facebook og Tagliatelle á PizzaHut! og ég er hins vegar ekki að fýla það að loftræstingin var tekin úr húsinu sem ég vinn í, þannig að maður er bara sveittur allan daginn í svona um það bil 25°hita, alveg æði .. smá upphitun, híhí .. þannig ég kveð bara glöð í bragði og vona að það verði gott veður fyrir ykkur á Íslandinu á meðan ég er úti :) jei! og aldrei að vita nema ég skjóti nokkrum línum úti ..

Sólborg - að fara að yfirgefa klakann í 2 vikur