28 júlí 2006

Klakinn, again and again

Jæja, þá er ég lent á klakanum :/ og ég fékk að knúsa manninn minn, en gleðin á okkar bæ entist ekki lengi þar sem hann flýgur til Norge eftir nánar tiltekið 2 tíma! gosh
Annars, hvað skal skrifa frá Mallorca? best að stikla á stóru ... í punktum ...
  • Ofarlega á baugi var sólarvörn, sólarsæla og bananaboat after sun
  • Léttklæddir mongólítar (þá er ég að tala um okkur geðbiluðu íslensku stúlkurnar)
  • NEI, við erum ekki Þjóðverjar!! *reiði*
  • Fyllerí ;) dansandi sveittir og sexý karlmenn í "rimlabúrum" já og náttúrulega konur, það var svona minna fyrir mig!
  • Það var alveg legið í slatta tíma á ströndinni, svamlandi um á dýnu og svo áttum við líka sólhlíf, btw við skildum þetta drasl bara eftir vegna plássleysis .. nauðsynlegri hlutir þurftu að komast í töskurnar okkar, hehe
  • Skelltum okkur alveg 2svar í mollið, Porto Pi, og versluðum tja, alveg heilan helling
  • Sólborg og Vildís með strengi í höndunum daginn eftir vegna áreynslu í að halda á pokum fullum af fötum og fatahrúgum á leiðinni í mátunarklefann
  • Pjéningarnir flugu frá okkur (samt vorum við ekki rændar)
  • Keyptar voru svolítið stórar töskur til þess að koma nauðsynlegu hlutunum heim, þar sem hinar voru orðnar pakkfullar
  • Allir í essinu sínu
  • Þjónarnir farnir að kyssa okkur bless og vera með látalæti .. (er það ekki orð?)
  • Lítið af myndum teknar, helvede
  • Margt gerðist en sumt er bara ekki hægt að segja hér, hahahah
  • Vildís útétin af ógeðisflugum (myndir væntanlegar, bjakk)
  • Misstum okkur í vatnsleikjagarðinum, Aqualand, og hleyptum barninu svo sannarlega út já og sleiktum sólina og borðuðum skrítna pizzu
  • Lifðum lúxuslífi og borðuðum úti á veitingastöðum í hádeginu og kvöldmatnum og ekki má gleyma girnilegum kokteilum,
  • Hristum á okkur rassinn á Riu Palace, aðalpleisið
  • Guðrún og súdúkú, like this (krosslagðir puttar)
  • Fórum á djammið kvöldið áður en við fórum heim
  • Beint á hótelið af skemmtistaðnum
  • Upp í rútu
  • og svo í Flugvélina, allar með comfort settið á réttum stað :)
  • klst. bið eftir því að flugvélin fór af stað, við vorum fullar og vitlausar og sváfum bara þann tíma, ég viðurkenni að ég vissi það ekki einu sinni .. hehe .. heyrði það aldrei sagt
  • Flugið leið hratt með smá ógleði og ommelettu
  • Hvítir rassar

Nú er þetta komið nóg, það er samt pottþétt frá miklu meira að segja sem ég gleymi eða get bara hreinlega ekki sett hér á internetið fyrir framan alþjóð ;) Myndir eru væntanlegar, samt ekki strax, mín vél er brátt á leið aftur út í lönd og ekki gafst tími til að setja myndirnar í tölvuna :/ Takk fyrir ferðina elsku stúlkukindunar mínar :) þetta verður pottþétt endurtekið!

Sólborg - segir bless, ekkert stress og verið hress

19 júlí 2006

Mallorca here I come ;)

Jæja er hérna í vinnunni og er orðin nett spennt fyrir ferðinni minni, hehe .. já öfundið mig endilega. Ég og Vildís brunum suður eftir vinnu í borg óttans og svo bara út á morgum :) fáum að gista hjá móður hennar Guðrúnar í Keflavíkinni .. þannig að segji bara adios og hafið það gott í kuldanum elskurnar mínar! (p.s. ég er bara orðin ofurbloggari!)



Sólborg - farin að leika mér

17 júlí 2006

Mikið lifandi skelfingar ósköp er gaman ...

... að vera svolítið hífaður (lalalala, sungið) Það var Ábæjarskrall um helgina sem tókst vel til, allur mannskapurinn nema ólétta konan og Óli drukku! og tóku sko vel á því, drykkjuleikir og skotboðhlaup voru nú til þess að allir komust ekki alla leið niður í bæ, stoppuðust í leigubílnum ælandi paprikum ;) hehe sæta sæta!

Annars er makalegt að fólk sem skipar manni að blogga er að spara kommentin, hehe .. you know who you are! ... annars er það helsta í fréttu að ég fer út eftir 3 daga, suður eftir 2! og fólk, það er sko komin inn ný massa myndasíða, með myndum frá London, Dimmiteringunni, 17. júní svo eitthvað sé nefnt. Stefni á að setja Mallorcamyndirnar þarna inn þegar ég verð lent á klakanum aftur ;) so enjoy ljúflingar!

Sólborg - bara rétt að tjá mig og alveg að rjúka af klakanum

14 júlí 2006

Hví?

já, ég spyr að því .. hví bloggar maður ef maður hefur voðalega lítið að segja?

Ég hef eitt að segja; Ég samhryggist fjölskyldu og vinum Sigrúnar, eða bara öllum sem þekktu hana lítillega, hún var alltaf svo hress. Hennar verður sárt saknað :/
... Hvíl í Friði Sigrún ...

En að öðrum málum; finnst samt asnalegt að tala um skemmtilega hluti rétt eftir að ég hef verið að tala um hörmulega hluti! ........ ég er að fara út til Mallorca eftir 6, sex, daga :) það verður gott! slappa af með kokteil á ströndinni já eða sundlaugarbakkanum í sandölum og ermalausum boooool. Verlsa svona aðeins það sem manni "vantar" og tjékka bara mannlífið, því miður verður gleðin stutt þar sem að ég verð lent aftur á klakanum einni viku síðar. Ferðafélagar mínir eru ekki af verri endanum og munu það vera hinar margrómuðu Guðrún og Vildís :) vantar reyndar Túttuna, en hún kemur kannski bara næst!
Annars erum við farnar að hugsa um hvað skuli gera eftir skólann .. við erum alltaf að skipta um skoðun, svo ég held ég tjái mig ekkert um það hér .. er orðin lítið meira en spennt sko! fjúddafjú ...
Starfsmannapartý í kveld, í partýhlíð 14, skemmtiatriðin hjá okkur Vildísi verða svaðaleg, hehe .. við erum samt held ég ekkert alveg búnar að ákveða allt ;) en þetta reddast!

Sólborg - hví?