17 júlí 2006

Mikið lifandi skelfingar ósköp er gaman ...

... að vera svolítið hífaður (lalalala, sungið) Það var Ábæjarskrall um helgina sem tókst vel til, allur mannskapurinn nema ólétta konan og Óli drukku! og tóku sko vel á því, drykkjuleikir og skotboðhlaup voru nú til þess að allir komust ekki alla leið niður í bæ, stoppuðust í leigubílnum ælandi paprikum ;) hehe sæta sæta!

Annars er makalegt að fólk sem skipar manni að blogga er að spara kommentin, hehe .. you know who you are! ... annars er það helsta í fréttu að ég fer út eftir 3 daga, suður eftir 2! og fólk, það er sko komin inn ný massa myndasíða, með myndum frá London, Dimmiteringunni, 17. júní svo eitthvað sé nefnt. Stefni á að setja Mallorcamyndirnar þarna inn þegar ég verð lent á klakanum aftur ;) so enjoy ljúflingar!

Sólborg - bara rétt að tjá mig og alveg að rjúka af klakanum

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já Sólborg það eru bara 3 dagar þangað til að við hittumst í Leifsstöð!! :)

Nafnlaus sagði...

ég vildi að þið væruð bara að koma núna..þoli ekki að biða svona... já talandi um að vera hífaður.. er það ekki planið þegar að við leggjum af stað á vit ævintýranna;) þú skillurr...

Nafnlaus sagði...

Hehe já þú ert nú meiri...ha, að komast ekki niðurí bæ einu sinni ;) híhí... En já ég er farin að hlakka mjööööög mikið til :) :) :)

Nafnlaus sagði...

æjh hvað mig langar mikið til útlanda... liggja í sólbaði... grr ég fer bara að verða pirruð

Nafnlaus sagði...

Sigurlaug; söss .. í dag eru sko 2 dagar væna!
Guðrún Ýr; hmmm .. ég er nú ekki alveg viss, var að hugsa um afslappa flugferð ;) en maður veit aldrei!
Vildís; hmm, ég man nú ekki betur en að sumir hafi borið suma heim, hehe ;) við vorum góðar! og btw, ég hafði enga papriku borðað, híhí .. svo ég held að þú sért sek;) muhahahhaah ..
og Arna; svo ég svari nú bara öllum, ég ætla sko að fara í sólbað og hafa það gott! þú ferð bara út á næsta ári :)

Nafnlaus sagði...

Góða skemmtun sæta mín, vertu nú ættinni til sóma og gerðu fáa skandala... bara fá þér frekar flotta sandala..... eða eitthvað :)

alla vega skemmtu þér ógó vel.......

Nafnlaus sagði...

Það er bara Reykjavík í dag og Spánn á morgun... sjáumst í Leifsstöð... :)