18 ágúst 2006

Já, hér er ég :) enn og aftur, en þú sérð mig ekki! dagurinn í dag er leiðigjarn .. en ég er orðin dökkhærð, það er samt gaman! hehe .. annars ætla ég væntanlega að henda inn myndum af Mallorca ferðinni og nýja hárinu (fyrir fólkið í burtu) eftir helgi /segji ég þetta nokkuð alltaf?/ .. annars er ættarmót í vændum og mun ég bruna þangað með mínum ástkæra föður uppúr fimm í dag á fallegu sjálfrennireiðinni hans og skilja mína eftir fyrir kallinn, fótbolti?
Ég er bara að blogga af því að mig langaði að segja eitthvað, svona til að létta lundina. Reyndar er mín lund voðalega létt .. jákvæðni í fyrirrúmi og bros kemur öllu í lag :) ég hef heyrt að ég búi yfir þeim glæsilega hæfileika, veit nú ekki hvort að allir vilji meina það .. hehe
Ég held samt að ég sé komin aftur á gelgjuna, er komin með æði fyrir einhverjum svona myndum í bloggin mín og ég get svo Guðs svarið það. En mér líkar allavega vel við þær, sumar eru nú samt einum of! Flestar samt algjört bjútí ..

Ást án ástar á móti
er eins og þýðingarmikil spurning
sem fær ekki svar
Sólborg - jákvæða!

16 ágúst 2006

Titill?

Já, ég er komin enn og aftur .. en samt aldrei með fréttir ;) hehe .. góð helgi afstaðin, ég er reyndar aðeins sein í þessu, það er nefnilega komin miðvikudagur!
Annars hélt Ragnhildur uppá 17 ára afmælið sitt og þar var mikið fjör, miklar kræsingar og gott fólk. Í þynnkunni var skellt sér á Akureyri í bíó á Pirates of the Carribiean: Dead Man's Chest, hún er best .. samt er ég leið yfir því að bíða í ár eftir næstu :/ arrgus garrgus. Svo voru það bílasölur þar sem kallinn er að leita að bíl, við fórum líka í heimsókn til Brynju, þar sem alls konar ís var á boðstólum .. ég fékk bragðaref *slurk*
Það virðist sem allir séu að skella sér á menningarnótt eða Kántrýhátíð (Guðrún Eik er allavega með áróður um öll blogg að skella sér þangað, gæti verið gaman ;)) .. en þar sem ég mun vera á "ættarmóti" og í brúðkaupi, held ég að öllu svona verði sleppt þessa helgina! ,kannski komin tími á pásu? hehe

Sólborg - fréttalaus

11 ágúst 2006

Leiðarvísir um tíðarhring kvenna

Tíðahringur konunnar er 28 dagar. Hormónar og boðefni eru öflugustu stjórntæki náttúrunnar sem hafa bæði áhrif á líkama og sál. Skapferli kvenna breytist í takt við sveiflur í hormónabúskapnum og það getur verið skammt milli hjúfurþarfar og morðæðis. Það getur því skipt sköpum í samskiptum kynjanna að karlmenn þekki á klukku tíðahringsins og viti hvers vegna konur eru eins og þær eru. Lítum aðeins nánar á málið.

Dagar 1-5
Við upphaf tíðahrings minnkar magn estrógen-hormóna í blóðinu. Á þessum tíma eru aðeins 2% líkur á að samfarir leiði til getnaðar. Þetta gætu verið góðar fréttir en eru það ekki því lágt estrógenmagngerir að verkum að konan hefur lítinn áhuga á kynlífi. Í hennar augum er karlmaðurinn húsgagn þessa dagana. Skortur á estrógeni veldur einnig andvökum og eirðaleysi svo á þessum dögum eru konur sérstakleg afkastamiklar og áhugasamar um húsverk.

Dagar 6-9
Um þessar mundir líður konunni vel. Hún er í góðu jafnvægi og hormónar og boðefni eru í góðu jafnvægi. Nýjar hugmyndir eru vel þegnar og þeim er oft tekið með stillingu og jafnaðargeði. Þetta gæti því verið góður tími til að koma á breytingum, lægja öldur og gera upp gömul ágreiningsefni. Kannski fær gamla hugmyndin um tveggja holu gólfvöll í garðinum grænt ljós.

Dagar 10-14
Nú fer að verða gaman því aukið magn andrógen-hormóna í blóði kvenna vekur með þeim heilbrigðan og lifandi áhuga á kynlífi. Um þessar mundir þarf ekki að grenja út neitt með eftirgangsmunum heldur er konan alltaf til í tuskið og snarast úr naríunum af minnsta tilefni. Þetta eru því skemmtilegir en krefjandi dagar fyrir eiginmenn og elskhuga.

Dagur 15
Þessi dagur er eiginlega hápunktur tíðahringsins. Hér eru mestar líkur á getnaði og konan beinlínis óðfús til þess að lifa kynlífi. Það þarf ekki endilega að vera með eiginmanninum því rannsóknir sýna að á þessum stað í hringnum eru konur líklegastar til að halda framhjá. Rannsóknir á næturklúbbum sýna að á þessu skeiði klæðast konur flegnari og aðskornari fötum en aðra daga. Ástæðan? Þær eru í veiðihug. Þess vegna er skynsamlegt að sleppa þeim ekki út af heimilinu heldur sinna af alúð því hlutverki sem náttúran ætlast til og gera daginn að degi kynlífs og losta.

Dagar 16-23
Nú fer estrógen aftur minnkandi og dregur úr frjósemi. Af einhverjum furðulegum ástæðum laðast konur að mjúkum kvenlegum mönnum á þessu skeiði. Það er vegna þess að hún er ekki lengur að leita að stórum og sterkum manni heldur einhverjum sem sinnir heimilinu. Það getur því borgað sig að vera almennilegur og reyna að snúa mjuklegu hliðinni út. Nú er vinsælt að setja á sig svuntuna og muna að vökva blómin og horfa með henni á Providence eða Friends í sjónvarpinu.

Dagar 24-26
Estrógen minnkar enn en progesteron-hormón eykst í staðinn. Á þessum dögum er skapferli kvenna afskaplega óstöðugt og getur blossað upp í ofsalegum bræðiköstum með engum fyrirvara. Konan er viðkvæm fyrir gagnrýni, uppstökk, grátgjörn, úrill, áhugalaus og hefur nagandi áhyggjur af útliti sínu. Þetta eru því góðir dagar til þess að fara út að skokka og brenna við það bæði hitaeiningum og fá útrás fyrir pirring og reiði. Á þessum tíma eru skynsamir eiginmenn undirgefnir og leiðitamir og forðast þrætur og uppistand því hjónabandið er jarðsprengjusvæði. Þetta er nefnileg sá tími tíðahringsins sem hin illræmda fyrirtíðaspenna nær hámarki sínu en fyrirtíðaspenna er nokurs konar safnheiti yfir fjölda einkenna sem flest eru hættuleg. Það er á þessum tíma sem leirtauið getur flogið, hjónabönd rofnað, það er grátið útaf tómati sem datt í gólfið og það er á þessum tíma sem konur myrða eiginmenn sína...Farið varlega strákar!

Dagar 26-28
Þetta er tiltölulega hættulítill tími því fyrirtíðaspenna hverfur eða dregur úr henni. Enn dregur úr flæði hormóna því nú er hringurinn við það að lokast og hefjast að nýju. Þetta getur leitt til löngunar í feitneti og sætindi sem getur vissulega hresst uppá sa´lina en situr lengi á líkamanum. Það er því ekki ráðlegt að láta eftir þessum löngunum. Eiginmaður sem vill vera góður við konuna sína ætti því ekki að fara og sækja ís handa henni. Honum yrði eflaust kennt um að hafa látið hana borða borða sætindi sem gera hana svo feita.


Kannski þetta hafi hjálpað einhverjum karlmanninum að skilja elskuna sína betur, mér finnst þetta bara snilldin ein ;) Var að vafra hérna um á internetinu og rakst á þetta á einni síðu. Annars var versló best, við tókum 1 mynd, þannig að það er ekki mikið um myndardýrðir á þessum bæ, reyndar stefni ég að því að setja inn myndir frá Mallorca ferðinni áður en þessi vika verður liðinn! hehe .. það eru allir búnir að skrifa um versló þannig að ég ætla bara að láta mér nægja að segja þessi; mikið drukkið, mikið gaman, mikið dansað, mikið blautt, mikið sukkað!

Sólborg - mikið hvað?

04 ágúst 2006

Allt að gerast ...

Eins og titillinn gefur til kynna er bara allt á fullu ;) í gær skelltum við Vildís okkur í búðina til þess að versla inn fyrir helgina, eintómt sukk og svínarí .. keyptum ekkert á grillið bara endalaust nammi, snakk og kökur! JEI að ógleymdum sitthvorum kassanum af bjór :)
Þannig að þessi helgi stefnir í eintóma gleði og hamingju, mig langaði bara allt í einu rosalega mikið að tjá mig um þetta allt .. tók mig til í gær, regnkápan .. sem skapaði sér miklar vinsældir á síðasta ári .. er sko komin efst í töskuna, hehe!
Er málið að hafa svona myndir eða? .. það eru allir með myndir! en sannarlega lífgar það upp á bloggtilveruna :)
Annars er maður að heyra að flestir ætli að skella sér í höfuðborg norðursins og vera beyglaðir, en ég hlakka bara til að sjá ykkur sem flest!
Sólborg - góða helgi góða fólk

02 ágúst 2006

Am I getting old or?



Vááá, tíminn flýgur einhvern veginn gjörsamlega frá manni á þessum aldri! ótrúlegt en satt, en þetta eru samt sko árin .. allavega heldur maður það :) samt koma alltaf einhver betri ár, oftast! annars er ég bara að elska lífið þessa dagana, nema það að Albert er í Norge og mamma í RVK og pabbi á Sigló .. þar af leiðandi hefur mér tekist að klára allan kassan af Sex and the city, and I am loving it :) hehe .. nú er ég bara byrjuð á bíómyndunum, og er að bíða eftir að byrja að horfa á Lost, keypti 1.seríuna á Mallorca.
Bráðum kemur versló, ég stefni á að opna bjór strax og ég legg af stað .. ég hlakka geggjað til, ég og Vildís ætlum að missa okkur í sumarsmellunum 100, sofa í tjaldi og vera beyglaðar! gerist ekki betra ....
Enn það er að koma að því að ég verði "stór" það verður eitthvað skrautlegt. Mamma komin með vinnu í borg óttans og ætlar að klára háskólann og faðir minn fylgir fast á hæla hennar og ég mun, ásamt Albert, sjá um Eskihlíðina! váá, þetta er að fara að gerast.
Enn nú er tíminn farin að fljúga frá mér í vinnunni, það gerist nú sjaldnar en í lífinu, hehe .. þannig ég býst nú ekki við að blogga fyrr en bara eftir helgi :) en maður veit samt aldrei, þar sem að ég er orðin svooo massív í blogginu!

Sólborg - að fara að búa?