Annars bíð ég spennt eftir því að Zorin (kann ekki að skrifa þetta) geri lögin í leikritinu svo að ég geti farið að dansa! hlakka svoo til, sérstaklega eftir dansprufurnar .. þá fékk maður þetta svo beint í æð eitthvað! svo eru allir eitthvað að spá í að fara að sparka í boltann aftur, á að stofna meistaraflokk kvenna .. þannig að það er aldrei að vita hvað maður gerir :) hehe .. ég afrekaði það allavega að skrá mig á Framhaldsskólamótið í Fótbolta .. aftur!
Ég hlakka til helgarinnar sem er á næsta leyti, þá er nefnilega Laufskálarétt .. mig hlakkar samt bara til ballsins í Reiðhöllinni þar sem ég verð að vinna og missi af réttinni. En ég hef oft séð hesta hlaupa svo mig skortir ekkert .. Sóley er í Perú, minns saknar hennar doltið! ég bendi allavega öllum á bloggið hennar www.blog.central.is/bastardur8 .. af því að hún er að gera svoo skemmtilega hluti sem ég elska að lesa um :) JEI .. er að vinna í bréfinu til þín mús!
Ég get ekki bloggað lengur, þessi hæfileiki minn er farin út fyrir bí, ég æði úr einu í annað .. sem getur verið óþolandi! En Svanhildur og Raggi eignuðust lítinn, stóran, strák fyrir stuttu .. ég óska þeim til hamingju með það og vonast til að sjá litlu fjölskylduna sem fyrst! :* og svo var Esther "platfrænka" mín einnig að eignast lítinn strák, til hamingju með það! ..
Ég á að gera heimadæmi í stæ, fara í landafræðipróf og mæta í jóga .. og vinna í banken og á Ábæ, samt elska ég lífið :) ég á nefnilega líka góðan kall, hann moppaði eldhúsgólfið í gær og setti í þvottavél, æji .. og hann ætlar að elda kjúlla í kvöldmatinn fyrir mig :* .. og mamma og pabbi koma bæði heim næstu helgi! vildi að Andri kæmi líka, en hann er alltaf að vinna :/ en ég er samt glöð, bara jibbí glöð!! hafið það gott sykurpúðar!
Sólborg - glaða og veður óúrskýranlega mikið úr einu í annað!





