15 júní 2007

Obbobobb!!

Ekkert blogg komið frá mér í heilan mánuð! og fólkið sem kíkti hingað inn endrum og sinnum í gamla daga er væntanlega hætt að kíkka við með vonarneista í augum? hmm, eða eruði ennþá þarna úti? :) ég hef samt góða afsökun fyrir öllu þessu blogg og kommentaleysi á aðrar síður .. ég er ekki með netið! er að blogga í vinnunni þar sem að það er nákvæmlega ekki neitt að gera í augnablikinu hérna í Hafnarfirðinum!
Margt hefur gerst síðan ég bloggaði síðast, ég er komin með nýjan sambýlismann, hann Ingu Birnu .. hehe .. enn ég stend fast á því að hún sé kallinn bara útaf boltanum samt! svo er ég orðin stúdent og á þessa líka fínu fínu húfu! svo er maður búin að taka einum of mörg djömm á þetta síðan maður flutti, þannig að það er pása um helgina hjá mér þegar allir aðrir eru að fara á Tindastólshátíð! eitt veit ég að það verður mikið trallað þar .. ég mæti bara eftir önnur 100 ár ;) svo fór ég náttúrulega í snilldarinnflutningspartý í Breiðholtinu, bæði hjá Rakel og Önnu Lóu og svo Arnari og Vildísi! takk fyrir mig góða fólk .. já og Guðrún er komin heim og allt á fullu sko! þannig að jájájá, ég ætla alltaf að setjast niður og hafa voðalega mikið að segja enn svo loksins þegar ég sest, þá er allt stolið úr mér! flan :) Annars langar mig rosa í tisa, fer pottþétt í heimsókn að kíkja á litlu sætumúsatisurnar við fyrsta tækifæri!
Ég skrifaði allavega fáein orð, Inga er búin að sækja ráderinn og nú þurfum við bara að fá einhvern tæknivæddan í heimsókn til að redda þessu .. sjálfboðaliðar? :) og þegar það er komið í gagnið get ég verið duglegri að blogga, hehe ..

Sólborg - stúdent sem skrifaði svo einum of oft í þessu bloggi! hefði kannski bara átt að gera punktablogg? ;)

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ætli ég verði ekki að hunskast í heimsókn eftir helgina og bjarga málunum? Ég er jú sú klárasta í bransanum :)

Nafnlaus sagði...

Já ég veit um einn tölvuvæddann mann sem gæti kannski reddað ykkur!!! En þú missir af miklu hérna á króknum á morgun... Verður bara snilld!!

Nafnlaus sagði...

Vá... brá smá að sá blogg! hahahah :P dugleg stelpa!

Nafnlaus sagði...

hey til hammó með útskriftina ;) soldið á eftir.. hehe

Nafnlaus sagði...

jáhá ég er sko mætt á klakann sæta ;) við eigum sko eftir að tralla e-ð í sumar.. helduru það ekki?! en já ég hef nú ekki mikið að segja þar sem að ég var að koma heim eftir að hafa eytt kveldinu með þér.. hehe hljómar smá skrýtið.. hehe sjáumst á morgun sæta:D

Nafnlaus sagði...

Hæææ já það var mikið að þú bloggaðir!! (haha) Mig langar líka að sjá litlu tisur :)

Nafnlaus sagði...

Úff.. ég var alveg rugluð á að lesa þessa grænu skrift!

En það hefði vissulega verið gaman að hafa þig um helgina :)